Sæl verið þið. Þessi póstur var að berast frá G. Tyrfingssyni:
Það verður ekki akstur í fyrramálið miðað við að þessi aðvörun haldist, en við skoðum með heimakstur þegar líður að hádegi.
Fylgist vel með tölvupóstum á morgun. Fyrir frekari upplýsingar er bent á skrifstofu Guðmundar Tyrfingis.
Eins má benda á eftirfarandi:
Gul viðvörun / Appelsínugul viðvörun
Forsjáraðilar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þarf barni í/úr skóla/frístund. Mikilvægt er að fylgjast með tilkynningum frá ritara skólans vegna skólaaksturs fyrir þá sem búa í Ölfusi.
Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla/frístund vegna veðurs þá skulu þeir tilkynna skóla/frístund um það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll. Hið sama gildir ef foreldrar lenda í vandræðum á leið sinni til skóla og verða frá að hverfa.
https://grunnskoli.hveragerdi.is/is/foreldrar/vidbrogd-vid-ovedri