Foreldrafélag

Starfsemi foreldrafélaga í grunnskólum er í stöðugri þróun. Ákvarðanataka í skólamálum hefur færst nær foreldrum og forráðamönnum en það undirstrikar þörf fyrir formlegan samstarfsvettvang þeirra. Vel rekin og virk foreldrafélög við hvern skóla eru tvímælalaust af hinu góða. Foreldrar og forráðamenn hafa þar vettvang til að ræða saman um skólagöngu barnanna og hvað eina sem varðar uppeldi og menntun. Til að ná sem bestum árangri er nauðsynlegt að þeir sem tengjast stjórnun og rekstri slíks félags velti fyrir sér markmiðum félagsins og hvernig megi skipuleggja starfið svo að þau markmið náist. Með virkri starfsemi foreldrafélaga er hægt að stilla saman strengi í ýmsum hagsmunamálum og velferðarmálum með hagi barnanna að leiðarljósi. Foreldrafélög skulu leggja áherslu á sem virkast foreldrastarf í einstökum bekkjardeildum eða umsjónarhópum. Foreldrafélög skulu hafa sem best samstarf við skólaráð og nemendaráð.

Foreldrafélag Grunnskólans í Hveragerði 2022-2023:

Bryndís Guðmundsdóttir.

Halla Hjördís Eyjólfsdóttir. 

Halldóra Helga Valdimarsdóttir, formaður.

Rósa Huld Sigurðardóttir. 

Selma Margrét Karlsdóttir.

Thelma Runólfsdóttir.

 

Handbók fyrir foreldrafélög