Vasaljósafriðarganga skólans

Vasaljósafriðargangan
Vasaljósafriðargangan

Það var eftirvænting í lofti í gærmorgun þegar vinabekkir skólans hittust og gengu hina árlegu vasaljósafriðargöngu. Nemendur og starfsfólk lögðu af stað með vasaljósin og var gengið inn í myrkrið í útistofunni undir Hamrinum. Þar var búið að kveikja eld og eldri nemendur buðu þeim yngri upp á heitt kakó og smákökur. Veðrið gat ekki verið betra, heiðskír himinn og fullt tungl.