Útvarp GÍH / Markaðstorg á föstudag

Komið þið sæl. 

Í vikunni hafa nemendur skólans staðið að framleiðslu á alls kyns vörum sem verða svo seldar á markaðstorgi föstudaginn 28.11 í íþróttahúsinu og eins verður kaffihús fyrir gesti í matsal skólans.

FYLGIST ENDILEGA MEÐ Á UTVARP.HVG.IS

Almannaheillafélagið Vonarbrú sem styrkir stríðshrjáðar barnafjölskyldur á Gasa hlýtur ágóðann þetta árið en sú ákvörðun var tekin eftir kosningar meðal nemenda.

Opnunartími á markaðstorgi er 9:30-11:30 en kaffihúsið er opið frá 9:00 til kl 12:00.

Athugið að fyrstir koma, fyrstir fá. Undir lokin má búast við að lítið verði eftir til sölu á markaðstorgi.

Enginn posi verður á staðnum en mögulegt er að borga með peningum eða millifærslu.

Einnig er tekið á móti frjálsum framlögum á reikning nr. 0358-22-2040 kt: 471088-2509.

Skólastarfið:

Skóli hefst á hefðbundnum tíma í heimastofu en lýkur að loknu markaðstorgi um kl 12:00.

Þennan dag verður ekki hefðbundin stundatafla.

Íþróttir, sund og smiðjur falla niður.

Það verður ekki hádegismatur í skólanum en þeir nemendur sem eru skráðir í frístund í Bungubrekku fá viðbótarhressingu þar.

Fyrri skólabíllinn fer kl 12:10 og sá seinni kl 15:05 frá Bungubrekku.

Aðstandendur barna á yngsta stigi vinsamlega athugið:

Þeir aðstandendur sem ekki komast á markaðstorgið eru vinsamlega beðnir að láta umsjónarkennara vita.

Mikilvægt er að koma fyrst í heimastofu og einnig láta vita ef börn fara heim með aðstandendum að loknu markaðstorgi.

 

Bestu kveðjur,

starfsfólk GÍH.