Útskriftarathöfn 10. bekkja

Í gær var sögulegur dagur í skólanum. Í fyrsta sinn var útskriftarathöfn 10. bekkja haldin í nýja hátíðarsal Grunnskólans í Hveragerði.
 
Frá því að Barnaskólinn og Gagnfræðaskólinn sameinuðust árið 1988 undir nafni Grunnskólans í Hveragerði, hefur þessi athöfn jafnan verið haldin í Hveragerðiskirkju. Með tilkomu nýja matsalarins, sem breyttist í glæsilegan hátíðarsal í gær, rættist sá draumur að geta útskrifað nemendur innan veggja skólans, að viðstöddum foreldrum og fjölskyldum. Jói Stefáns blés í sinn lúður og útskriftarnemendur inn í salinn með ákveðnum hátíðleik og setti tóninn fyrir athöfnina. Umsjónarkennararnir Jónas Gunnþór og Sigrún fluttu góða ræðu til útskriftarhópsins. Björgey formaður nemendaráðs, mælti fyrir hönd nemenda, frábær ræða. Matta opnaði hjarta sitt upp á gátt í einlægri ræðu, en hún á mjög persónulega tengingu við þennan flotta hóp, sem ristir mun dýpra en bara í gegnum súkkulaðimola. Tónlistaratriði frá nemendum var stórskemmtilegt og greinilegt að flytjendum leið vel á sviðinu og gáfu sér góðan tíma til að njóta með öllum viðstöddum. Sjálfum mæltist mér ágætlega fyrir, náði meira að segja að koma að spjalli mínu við rokkara frá því fyrr um daginn. Sem var fínt.
 
Allt tal um ólæsi og ómennsku ungmenna er óþolandi. Auðvitað getum við í skólunum víða gert betur. Þegar við starfsfólk skólanna kveðjum útskriftarnemendur að vori fyllumst við bjartsýni. Unga fólkið er alltaf það sem bjargar okkur frá ruglinu.
 
Þetta var glæsileg athöfn og útskriftarhópurinn skólanum til mikils sóma. Ég óska þessum frábæru ungmennum innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í framtíðinni.
 
LoveloveloveSævar