Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu fyrir nemendur í 8. og 9. bekk

Mynd af vef dfs.is
Mynd af vef dfs.is

Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu fyrir nemendur í 8. og 9. bekk var haldin í tíunda skiptið laugardaginn 17. maí sl. í Menntaskólanum við Hamrahlíð.

Undankeppnir fóru fram í 67 grunnskólum á landinu þar sem alls 4.698 nemendur tóku þátt og fengu 100 nemendur sem stóðu sig best boð í úrslitakeppnina. Sigurður Elí Vignisson úr Grunnskólanum í Hveragerði stóð sig með eindæmum vel og sigraði 8. bekkjar keppnina. Sveinn Leví Kristinsson úr Hveragerði komst einnig í úrslit keppninnar en komst að þessu sinni ekki í verðlaunasæti. Peningaverðlaun voru veitt efstu þremur keppendum í hvorum bekk fyrir sig.
Sjá frétt á dfs.is: