Kæru nemendur og forsjáraðilar
Hér eru mikilvægar upplýsingar um nýju stöðu- og framvindupróf Matsferils í stærðfræði og lesskilningi fyrir nemendur í 4.-10. bekk. Þið eruð hvött til að kynna ykkur þær vel en getið jafnframt leitað til skólans eða sent tölvupóst til Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu á netfangið hjalp@midstodmenntunar.is ef bréfið svarar ekki öllum spurningum sem þið kunnið að hafa varðandi prófin. Við viljum líka benda ykkur á að hægt er að kynna sér allt um prófin á vefnum okkar.
Hvað eru stöðu- og framvindupróf?
Prófin hafa þann tilgang að veita upplýsingar um stöðu og framvindu nemenda í námi og varpa ljósi á styrkleika þeirra og áskoranir. Þannig er hægt að bregðast markvisst við námsþörfum þeirra. Prófin eru stöðluð, sem þýðir að hægt er að setja fram aldursbundin viðmið og bera árangur saman við landsmeðaltal.
Hvenær verða prófin lögð fyrir?
Prófin verða lögð fyrir á tímabilinu 2.-27. mars 2026 og hafa skólar því fjórar vikur til að leggja prófin fyrir. Hvernig fara prófin fram? Prófin eru lögð fyrir rafrænt og á skólatíma. Próftíminn er 80 mínútur en flestir nemendur leysa þau á 40-60 mínútum skv. forprófun.
Hvernig undirbúa nemendur sig fyrir prófin?
Prófin krefjast ekki sérstaks undirbúnings en það er mikilvægt að hvetja börn til að gera eins vel og þau geta. Þannig fást bestu upplýsingarnar um færni þeirra. Útbúin hafa verið sýnispróf sem sniðin eru að aldri nemenda. Þau eru aðgengileg á synisprof.mms.is. Sýnisprófin eru ekki ætluð til þjálfunar í stærðfræði eða lesskilningi heldur til að kynnast stafrænu umhverfi prófanna.
Sjá nánari upplýsingar hér:
https://grunnskoli.hveragerdi.is/static/files/Efni/Ymislegt/matsferill-foreldrabref-mars2026...pdf