Um rafhlaupahjól

Komið þið sæl.

Að gefnu tilefni er bent á að ökumenn rafmagnshlaupahjóla skulu hafa náð 13 ára aldri samkvæmt umferðarlögum og þeir sem eru undir 16 ára aldri þurfa alltaf að nota hjálm.

Þegar hjólað er á gangstéttum og gangstígum skal það gert með því skilyrði að það valdi ekki gangandi vegfarendum hættu eða óþægindum.

Sjá nánar hér: https://island.is/rafmagnshlaupahjol