Eftirfarandi bókun var samþykkt samhljóða á fundi bæjarráðs Hveragerðisbæjar þann 18. nóvember:
Bæjarráð Hveragerðisbæjar óskar Guðríði Aadnegaard, námsráðgjafa og umsjónarkennara við Grunnskólann í Hveragerði, innilega til hamingju með hvatningarverðlaun Dags gegn einelti sem veitt voru 9. nóvember sl. og afhent voru af forseta Íslands og mennta- og menningarmálaráðherra.
Fagráð gegn einelti hjá Menntamálastofnun valdi verðlaunahafa úr innsendum tilnefningum og varð Guðríður fyrir valinu vegna þess ómetanlega starfs sem hún hefur unnið í eineltismálum undanfarin ár. Guðríður þykir einnig einkar góð fyrirmynd sem lagt hefur mikið af mörkum til þess að skapa jákvæða menningu í skóla sínum. Þá hefur hún einnig unnið af kappi fyrir íþróttahreyfinguna og hafa störf hennar þar einkennst af metnaði, virðingu og hlýju fyrir börnum og öðru samferðafólki rétt eins og í skólanum okkar. Það er okkur Hvergerðingum ómetanlegt að hafa jafn hæfa starfsmenn og Guðríði í þjónustu við yngstu íbúa bæjarins.
Í tilefni af viðurkenningunni verður gróðursett tré í Lystigarðinum Fossflöt sem með táknrænum hætti mun dafna til framtíðar og minna okkur öll um leið á mikilvægi þess að allir einstaklingar fái að dafna og njóta sín í bænum okkar.
Myndirnar eru teknar þegar bæjarstjóri og formaður fræðslunefndar, Alda Pálsdóttir, afhentu Guðríði blóm í tilefni af viðurkenningunni. Þessir kátu krakkar á myndinni eru í 8. bekk Grunnskólans í Hveragerði og eru umsjónarhópur Guðríðar og Margrétar Ísaksdóttur sem sést einnig á myndunum.
Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri
Sjá fréttina á vef Hveragerðisbæjar