Kæru foreldrar og forsjáraðilar!
Hveragerðisbær býður ykkur að taka þátt í einstöku námskeiði fyrir foreldra í Grunnskólanum í Hveragerði. Námskeiðið er á
vegum Föruneyti barna hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu og heitir Tengjumst í leik (e. Invest in play). Markmið
námskeiðsins er að styrkja tengslin milli foreldra og barna og skapa meira jafnvægi og gleði í heimilinu!
Foreldrar hafa upplifað:
-- Aukna náms-, félags- og tilfinningahæfni hjá börnunum sínum.
-- Verkfæri til að takast á við daglegar áskoranir í uppeldinu.
-- Að dregið hafi úr hegðunarörðugleikum.
Námskeiðið hefur hjálpað fjölskyldum að byggja samvinnu og ró á heimilinu – og við trúum að það gæti líka gert ótrúlega góða hluti
fyrir ykkur! Það eru takmörkuð pláss svo skráðu þig fljótt til að tryggja þér þitt sæti! Í þetta sinn er námskeiðið fyrir foreldra barna fædd 2020.
Skráning fer fram í gegnum Abler; Frístundamiðstöðin Bungubrekka | Námskeið
Einnig getur þú haft samband við Sólveigu Rós (solveigros@hveragerdi.is) fyrir frekari upplýsingar. Við hlökkum til að sjá ykkur!
Námskeiðið verður kl: 17-19 á miðvikudögum og hefst 16. september og lýkur 2. desember.
Hér er hlekkur á myndband þar sem má sjá foreldra deila upplifun sinni af því að sitja námskeið: https://vimeo.com/1081793052?share=copy