Komið þið sæl,
Þegar skólaárinu lýkur færi ég ykkur kærar þakkir fyrir samstarfið á skólaárinu sem er nýliðið. Það er dýrmætt að eiga gott samstarf við heimilin. Styrkur þess samstarfs skiptir miklu máli fyrir velferð og vellíðan nemenda.
Skólaslit og útskrift 10. bekkja frá Grunnskólanum í Hveragerði fóru fram fimmtudaginn 4. júní síðastliðinn. Skólaslit 1.-9. bekkja voru með foreldraviðtölum sama dag.
Vinsamlega lesið eftirfarandi kveðju frá mér til nemenda skólans.
Bréf til nemenda Grunnskólans í Hveragerði
Nú er hafið sumarfrí. Tímabil sem býður upp á kærkomna tilbreytingu frá stundatöflum skólans og tækifæri til að endurnærast. Fríið er ekki aðeins tími til að hvíla sig, heldur einnig dýrmætt tækifæri til að eiga góðar samverustundir með fjölskyldu og vinum. Slíkar stundir eru mikilvægur þáttur í námi og þroska.
Mig langar að rifja upp reglurnar sem ég hef nefnt á öllum skólaslitum síðan ég varð skólastjóri. Þær eru einfaldar, en boðskapur þeirra á alltaf við. Þær eiga við alla nemendur skólans:
. Lesið mikið, forvitnist og fræðist - um heiminn, um fólk og um ykkur sjálf.
. Hugsið vel um heilsuna - bæði líkamlega og andlega.
. Farið út, hreyfið ykkur, njótið náttúrunnar.
. Verið góð hvert við annað - við mömmu og pabba, systkini og vini - og munið að segja þeim reglulega að ykkur þyki vænt um þau.
Við vitum ekki nákvæmlega hvað framtíðin ber í skauti sér. En við vitum að góð tengsl, áhugi á námi og lífsgleði eru traustur grunnur fyrir alla. Það er sama í hvaða átt lífið leiðir okkur. Vel skal vanda það sem lengi á að standa. Með þessum orðum vil ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars og vona að sumarið færi ykkur hlýju og ánægjulegar stundir.
Með bestu kveðju og þakklæti fyrir skólaárið sem er að baki. Ég hlakka til að hitta ykkur á götum bæjarins og vonandi í Laugaskarði oft og iðulega. Eins hlakka ég til að hitta ykkur á skólasetningu fyrir nýtt skólaár (2026-2027) 21. ágúst næstkomandi.
Vinarkveðja,
Sævar Þór.