Komið þið sæl.
Þegar skólaárinu lýkur færi ég ykkur kærar þakkir fyrir samstarfið á skólaárinu sem er nýliðið. Það er dýrmætt að eiga gott samstarf við heimilin. Styrkur þess samstarfs skiptir miklu máli fyrir velferð og vellíðan nemenda.
Skólaslit og útskrift 10. bekkja frá Grunnskólanum í Hveragerði var 4. júní síðastliðinn. Skólaslit 1.-9. bekkja voru með foreldraviðtölum sama dag.
Vinsamlega lesið eftirfarandi kveðju frá mér til nemenda skólans.
Bréf til nemenda Grunnskólans í Hveragerði
Nú tekur við sumarfrí. Tímabil sem býður upp á kærkomna tilbreytingu frá stundatöflum skólans og tækifæri til að endurnærast. Fríið er ekki aðeins tími til að hvíla sig, heldur einnig dýrmætt tækifæri til að eiga góðar samverustundir með fjölskyldu og vinum. Slíkar stundir eru mikilvægur þáttur í námi og þroska.
Mig langar að rifja upp reglurnar sem ég hef nefnt á öllum skólaslitum síðan ég varð skólastjóri. Þær eru einfaldar, en boðskapur þeirra á alltaf við. Þær eiga við alla nemendur skólans.
. Lesið mikið, forvitnist og fræðist - um heiminn, um fólk og um ykkur sjálf.
. Hugsið vel um heilsuna - bæði líkamlega og andlega.
. Farið út, hreyfið ykkur, njótið náttúrunnar.
. Verið góð hvert við annað - við mömmu og pabba, systkini og vini - og munið að segja þeim reglulega að ykkur þyki vænt um þau.
Við vitum ekki nákvæmlega hvað framtíðin ber í skauti sér. En við vitum að góð tengsl, áhugi á námi og lífsgleði eru traustur grunnur fyrir alla. Það er sama í hvaða átt lífið leiðir okkur. Vel skal vanda það sem lengi á að standa. Með þessum orðum vil ég óska ykkur öllum gleðilegs sumars og vona að sumarið færi ykkur hlýju og ánægjulegar stundir.
Með bestu kveðju og þakklæti fyrir skólaárið sem er að liðið. Ég hlakka til að hitta ykkur á götum bæjarins og vonandi í Laugaskarði oft og iðulega. Eins hlakka ég til að hitta ykkur 21. ágúst næstkomandi á skólasetningu skólaársins 2025-2026.
Sævar Þór
Úr ræðu minni við skólaslit 4. júní 2025.
Skólinn var settur 21. ágúst 2024 og þar með fór þetta skólaár af stað með öllum sínum áskorunum og lausnum. Nemendur við skólann voru síðasta haust 459, eru í dag 453. Í haust hefur svo fjölmennasti árgangur sem sögur fara af nám sitt við skólann; ríflega 60 1. bekkingar tilbúnir til að láta til sín taka frá og með 21. ágúst næstkomandi. Í sumar lýkur 3. áfanga skólabyggingarinnar. Næsta haust fáum við salinn og þrjár kennslustofur. Síðasta haust fengum við, sérkennslu- og stuðnings rými, vinnuaðstöðu fyrir sérfræðinga; talmeinafræðinga, þroskaþjálfa, sálfræðing, iðjuþjálfa og hjúkrunarfræðinga ásamt mötuneyti. Aukinheldur hefur verið tekin í notkun loftræsting í eldri hluta skólahúsnæðisins. Það er mikilvægt að 4. áfangi skólans þar sem fást átta kennslustofur verði sem fyrst á dagskrá og við reiknum með því að hönnun hans fari af stað á komandi hausti.
Við sem störfum við skólann erum ánægð með skólann okkar og fjölbreytt skólastarfið. Við hvetjum skólasamfélagið til að fylgjast með og taka þátt. Við höfum síðustu þrjú skólaár verið markvisst duglegri að segja frá skólastarfinu á samfélagsmiðlum og er almenn ánægja með þá miðlun. Fylgið okkur á Instagram og Facebook. Þátttaka foreldra í menntun og uppeldi barna skiptir sköpum og gott samstarf milli heimilis og skóla skilar miklum árangri. Það skiptir alla einstaklinga máli að sækja skóla og njóta góðrar menntunar.
Einn skóli, eitt lið. Áfram þið - áfram við! Lærum og leikum, njótum og nýtum. Með gleði, forvitni og samstöðu tökumst við á við framtíðina saman.
Gleðilegt sumarfrí.
Sævar Þór Helgason
Grunnskólinn í Hveragerði