Skólahald fellur niður 6.2.2025

Skólahald fellur niður í dag 6. febrúar.
 
Skólinn er opinn fyrir fólk í brýnni neyð, tilkynna verður skrifstofu skólans og stjórnendum um komuna með tölvupósti. Opnun frístundaheimilisins Bungubrekku verður í athugun um hádegi.
 
Rauð viðvörun:
Spáð er einstaklega áköfum og hættulegum veðurskilyrðum sem munu hafa mjög mikil og víðtæk samfélagsleg áhrif. Búast má við miklum skemmdum, líkur á slysum eru miklar og veðrið ógnar lífi. Viðbúið að samgöngur falli niður og aðgengi að innviðum og þjónustu skerðist verulega. Veður sem þessi eru sjaldgæf og krefjast umfangsmikilla aðgerða sem hefta þjónustu og daglegt líf almennings.