Samningur Hveragerðisbæjar við nemendur

Í vikunni fór fram undirskrift samnings sem Hveragerðisbær gerir við nemendur í 7. og 10. bekkjum í grunnskólanum.

Samningurinn felur í sér að nemendur 7. bekkja sinna umhverfishreinsun í bænum og nemendur 10. bekkja sinna ákveðinni vinnu í mötuneyti skólans ásamt gæslu í frímínútum. Fyrir þetta vinnuframlag nemenda greiðir Hveragerðisbær ákveðna upphæð sem nýtist svo nemendum í skólaferðalögum.

Geir bæjarstjóri kom í heimsókn og skrifaði undir fyrir hönd Hveragerðisbæjar. Fulltrúar nemenda voru Anna, Dísa, Kiefer og Helgi úr 10. bekk og Breki, Fenrir, Árni Þór og Ísak úr 7. bekk.