Heil og sæl kæru foreldrar/forráðamenn nemenda á mið- og elsta stigi.
Í tilefni af evrópska tungumáladeginum 26. september stendur félag enskukennara á Íslandi fyrir smásagnakeppni á ensku á meðal grunn- og framhaldsskóla landsins.
Eins og venjulega taka allir nemendur á mið- og elsta stigi GÍH þátt í þessu krefjandi en jafnframt skemmtilega ritunarverkefni.
Leikreglur eru í viðhengi en við hvetjum ykkur til að hafa samband við okkur ef eitthvað er óskýrt eða ef þið hafið spurningar.
Bestu kveðjur,
Genimar genimar@hvg.is
Óli Jó. olij@hvg.is
E.s. Hér má lesa eldri vinningsögur: https://online.fliphtml5.com/zifpq/jmqo/#p=4
-UPPFÆRT:
Heil og sæl kæru foreldrar/forráðamenn nemenda á mið- og elsta stigi.
Ég fékk mjög góðu ábendingu frá foreldri varðandi ensku smásagnakeppnina.
Það er óheppilegt að kalla þetta verkefni "keppni", því þetta er í raun og veru bara ritunarverkefni í samræmi við hæfniviðmið Aðalnámsskrár um skapandi ritun; að nemendur geti samið einfalda texta frá eigin brjósti þar sem ímyndunarafl og sköpunargleði fái að njóta sín.
Því ætlum við héðan í frá að hætta að tengja verkefnið við orðið "keppni" og nota orðið smásöguritun þar til við finnum heppilegara orð.
Einnig árétta ég að nemendur hafa í raun og veru alltaf haft val um það hvort þeir vilja að sín smásaga verði send í landskeppnina sem FEKÍ stendur fyrir og það mun ekki breytast.
Hins vegar verður aðaláherslan í kennslustundum á næstunni að æfa ritun og það verkefni er ekki valkvætt. Við munum finna leiðir til að aðstoða nemendur í kennslustundum og í viðhengi eru hugmyndir um það hvernig foreldrar/forráðamenn geta aðstoðað nemendum heima.
Ég vona að ég hafa náð að útskýra verkefnið betur en hvet ykkur til að senda okkur tölvupóst ef þess þarf.
Bestu kveðjur.
Óli olij@hvg.is
Genimar genimar@hvg.is
Greetings Dear parents/guardians,
To mark the European Day of Languages on September 26th, the Association of English Teachers in Iceland is organizing a short story competition in English for primary and secondary schools across the country.
Each year, all students at the middle and upper levels at GÍH participate in this challenging yet enjoyable writing project.
The rules are attached. However, please don't hesitate to contact either of us if anything is unclear or if you have any questions.
Best regards,
Genimar (genimar@hvg.is)
Óli Jó. (olij@hvg.is)
P.S. You can read a few of the past winning stories here: https://online.fliphtml5.com/zifpq/jmqo/#p=4