Piparkökuskreytingar hjá foreldrafélagi GÍH

Þriðjudaginn 10. desember kl 17:00 heldur foreldrafélag GÍH piparkökuskreytingar í sal skólans.

Aðgangur er ókeypis og piparkökur og glassúr er í boði foreldrafélagsins. 9. bekkur verður með veitingasölu á staðnum. Keppt verður um best skreyttu piparkökuna og eru glæsileg verðlaun í boði. Stjórn foreldrafélagsins skorar á alla foreldra að koma og eiga notalega stund með börnunum okkar á aðventunni.

Fyrir hönd foreldrafélags GíH

Jóel Hjálmarsson