Pangea stærðfræðikeppni er fyrir alla nemendur áttundu og níundu bekkja grunnskóla landsins. Aðalmarkmið keppninnar er að vekja áhuga hjá ungu fólki á stærðfræði, hvetja þau sem halda að stærðfræði sé of erfið til dáða með því að sýna þeim að þau geti afrekað mikið ef þau reyna, og hvetja efnilegustu nemendurna til áframhaldandi afreka.
Úrslitakeppni stærðfræðikeppninnar Pangeu fór fram með pompi og prakt í Menntaskólanum í Hamrahlíð síðastliðinn laugardag. Tveir Hvergerðingar náðu góðum árangri í úrslitakeppninni.
Sigurður Elí Vignisson varð í 9. sæti í keppni 9. bekkjar og Hlynur Kári Hlynsson varð í 18. sæti, einnig í 9. bekk. Eitthundrað nemendur frá 62 skólum víða um land komust í úrslit keppninnar.
Af Suðurlandi var Grunnskólinn í Hveragerði eini skólinn sem sem átti nemendur í úrslitum. Nemendur frá Grunnskólanum á Hellu, Barnaskólarnum á Eyrarbakka og Stokkseyri og Stekkjaskóla á Selfossi tóku einnig þátt í undankeppninni.
Keppnin, sem var fyrst haldin á Íslandi fyrir 10 árum, er fyrir grunnskólakrakka í 8. og 9. bekk af landinu öllu. Fjöldi þátttakenda í ár var 4.694 og því er keppnin sú langstærsta sinnar tegundar á landinu.