Ljósmyndakeppni - Hveragerði með augum barna

Í tilefni af Barnamenningardögum á Suðurlandi er börnum og ungmennum boðið að taka þátt í ljósmyndakeppni þar sem þau fá tækifæri til að sýna sitt sjónarhorn á heiminn í kringum sig.

Þrjár efstu myndirnar fara áfram í sameiginlega stafræna ljósmyndasýningu undir yfirskriftinni Suðurland með augum barna.

Athygli er vakin á að skilafrestur er 20. apríl.

Sjá ítarlegar upplýsingar um keppnina á meðfylgjandi mynd!