Til foreldra barna sem þurfa að æfa leshraða og lesskilning:
Við erum að byrja lestrarátak í skólanum. Markmiðið með átakinu er að auka leshraða og lesskilning. Nemendur fá með sér hefti með lestextum til að lesa í heima. Hvern texta á að lesa þrisvar sinnum og taka tímann í hvert sinn og skrá í skráningarheftið sem er í lestrartextanum. Lesturinn ætti að taka styttri tíma í hvert sinn.
Til að efla lesskilning er gott að byrja á því að lesa textann saman og ræða innihald hans. Gott er að fara yfir erfið orð, framburð þeirra og merkingu. Í lok átaksins verða nemendur lestrarprófaðir í skólanum til að meta framfarir.
Mikilvægt er að lesheftið sé alltaf í töskunni.
Til foreldra barna sem þurfa að æfa lesskilning og lestrarlag:
Við erum að byrja lestrarátak í skólanum. Markmiðið með átakinu er að efla lesskilning og lestrarlag. Nemendur fá með sér hefti með lestextum til að lesa í heima. Hvern texta á að lesa einu sinni yfir og svara munnlega spurningunum sem eru neðst á blaðsíðunni. Til að efla lesskilning er gott að byrja á því að lesa textann saman og ræða innihald hans. Gagnlegt er að fara yfir erfið orð, framburð þeirra og merkingu. Í lok átaksins verða nemendur lestrarprófaðir í skólanum til að meta framfarir.
Mikilvægt er að lesheftið sé alltaf í töskunni.