Lestrarátaki í 3. bekk lokið

Í 3. bekk er orðin hefð fyrir því að brjóta upp lestrarkennsluna með skipulögðu lestrarátaki. Meginmarkmið lestrarátaksins er að þjálfa upplestur, efla lesskilning og lestrarleikni og auka lestrarlöngun.

Lesnar eru saman ákveðnar bækur og verkefni unnin upp úr þeim og svo velja nemendur sér sjálfir bækur til að lesa. Framfarir eru metnar í upphafi og við lok átaksins. Að loknu átakinu kemur allur árgangurinn saman þar sem veittar eru viðurkenningar. Allir fá viðurkenningarspjald fyrir þátttökuna og smá gjöf og svo eru veittar viðurkenningar fyrir afköst og framfarir í lestrarhraða.

Allir nemendur bættu sig í lestrinum og var gaman að sjá hve nemendur unnu vel í þessu verkefni.