Heimsókn ráðherra í dag

Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og föruneyti kom í heimsókn í dag til að kynna sér útikennslu skólans. Þeim var boðið  með 2. bekk upp á pönnukökur í útistofu skólans, Lundi, og mæltist það vel til. Sjálfur sagði Ásmundur Einar á Facebooksíðu sinni að ,,við fengum að fara í útikennslutíma með öðrum bekk Grunnskólans í Hveragerði. Ótrúlega fróðlegt að fá innsýn í fyrirkomulag útikennslu''.

Óhætt er að fullyrða að útikennsla, það að flytja kennslu að einhverju leyti út fyrir veggi skólans, auðgi og styrki allt nám ásamt því að vera hollt fyrir bæði líkama og sál.

Útivist í stundatöflum er í takti við áætlun skólans um heilsueflandi grunnskóla en þar kemur m.a. fram markmiðið að flétta heilsu og velferð saman við daglegt skólastarf. Þá er hvatt til útivistar og hreyfingar í umhverfisstefnu skólans sem segir einnig að umhverfisfræðsla verði hluti af námi allra bekkja skólans og að nemendur séu meðvitaðir um hvernig hægt er að bæta líf sitt og komandi kynslóða með því að umgangast umhverfi sitt og náttúru af tillitssemi og umhyggju.