Sælir ágætu foreldrar,
Nú í upphafi skólaárs vil ég stuttlega kynna fyrir ykkur starfsemi heilsuverndar skólabarna í Grunnskólanum í Hveragerði sem fram fer á vegum Heilsugæslunnar í Hveragerði.
Viðvera mín í skólanum er eftirfarandi:
Mán 8-15
Þri 8-15
Mið 8-15
Fös 8-12
Utan þess tíma er alltaf hægt að leggja fyrir skilaboð hjá ritara skólans eða á heilsugæslunni eða senda mér tölvupóst á grunnskoli.hveragerdis@hsu.is .
Starfsemi heilsuverndar skólabarna er framkvæmd eftir þeim lögum og reglum sem um hana gilda. Á heilsuvefnum Heilsuvera.is er yfirlit yfir áherslur í starfseminni.
https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/throskaferlid/heilsuvernd-barna/heilsuvernd-grunnskolabarna/
Ég hvet ykkur til að kynna ykkur þetta vel og hikið ekki við að hafa samband við mig ef einhverjar spurningar vakna eða þið viljið koma skilaboðum til mín vegna barna ykkar.
Kær kveðja,
Guðfinna
hjúkrunarfræðingur