Hæ hæ,
Heilsumolinn að þessu sinni snýr að geðrækt barna og fjölskyldu. Að stuðla að og viðhalda góðri geðheilsu tekur tíma og byggist á litlum hversdagslegum hlutum í lífi okkar.
Við getum lagt okkar af mörkum með einföldum venjum í daglegu lífi. Í tengslum við þetta langar mig að vekja athygli ykkar á fimm leiðum að vellíðan.
Fimm leiðir að vellíðan:
1. Myndum tengsl
Gefum okkur tíma til að vera saman, hlusta og sýna áhuga á degi barnsins. Samvera þarf ekki að vera flókin t.d. að borða saman, spjalla í bílnum eða spila. Það mikilvægasta er að barnið finni að á það sé hlustað og þið sjáið það. Við þurfum ekki að hafa svar við öllu og stundum er nóg að segja bara "já, ég skil þig" og faðma barnið.
2. Hreyfum okkur
Förum út í göngu, hjólum, dönsum eða leikum okkur. Hreyfing þarf ekki að vera skipulögð íþróttaiðkun. Þið getið fundið ykkar leiðir til samveru og hreyfingar sem þarf ekki að kosta neitt.
3. Tökum eftir
Stöldrum við og njótum augnabliksins. Tökum eftir náttúrunni, því sem gleður okkur og hvernig okkur líður. Við getum til dæmis rætt við matarborðið um hvað var skemmtilegt eða gott við daginn. Brosum til nágrannans, bjóðum góðan daginn og sýnum að aðrir skipta okkur máli.
4. Höldum áfram að læra
Prófum eitthvað nýtt, lesum saman, eldum, föndrum eða lærum nýjan leik. Það að takast á við ný verkefni og finna að okkur fari fram getur eflt sjálfstraust og vellíðan.
5. Gefum af okkur
Sýnum góðvild, hjálpsemi og þakklæti. Hjálpumst að heima, hrósum hvert öðru eða gerum eitthvað fallegt fyrir aðra. Lítil góðverk geta haft jákvæð áhrif bæði á þann sem gefur og þann sem þiggur og í leiðinni erum við góðar fyrirmyndir.
Hvernig er hægt að samtvinna þetta fjölskyldulífinu?
Við þurfum ekki að gera allt í einu. Veljum frekar eina litla breytingu sem hentar fjölskyldunni okkar. Það gæti verið að eiga skjálausa samverustund, fara í stuttan göngutúr, spyrja barnið hvernig því líður eða taka eftir einhverju jákvæðu saman.
Regluleg samvera þar sem barn fær athygli og við hlustum án þess að flýta okkur að gefa ráð getur skipt miklu máli. Við þurfum ekki alltaf að leysa vandamálin, stundum er nóg að hlusta og vera til staðar.
Foreldrar eru fyrirmyndir barna sinna. Þegar við sýnum sjálf góðvild, ræktum tengsl, hreyfum okkur og gefum okkur tíma til að njóta augnabliksins kennum við börnunum mikilvæga færni sem þau geta nýtt sér alla ævi.
Hér má lesa meira um efnið og fá fleiri hugmyndir:
Fimm leiðir að vellíðan - myndaband - https://vimeo.com/904410693
Leiðir að vellíðan - Heilsuvera - https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/lidan/vellidan/leidir-ad-vellidan/
Mikilvægi samveru foreldra og barna - https://www.heilsuvera.is/efnisflokkar/lidan/samskipti-og-tengsl/mikilvaegi-samveru-foreldra-og-barna/
Kær kveðja,
Guðfinna
hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna