Hæ hæ,
Heilsumolinn að þessu sinni snýr að mikilvægi D-vítamín inntöku og hreyfingar í 60 mínútur á dag.
- Munum D-vítamínið á hverjum degi
D-vítamín er mikilvægt fyrir vöxt og þroska barna, beinheilsu og starfsemi ónæmiskerfisins. Niðurstöður rannsókna á íslenskum börnum sýna að D-vítamíngildi eru ekki fullnægjandi hjá stórum hluta þeirra. Því er mikilvægt að taka D-vítamín alla daga, börn jafnt sem fullorðnir. Nánari upplýsingar um D-vítamín og ráðlagða dagskammta má finna í meðfylgjandi blöðungi og á island.is https://island.is/d-vitamin
- Að minnsta kosti 60 mínútna hreyfing á dag
Reynum að koma inn hreyfingu þar sem við getum. Verum góðar fyrirmyndir fyrir börnin og hvetjum þau til þess að hjóla eða ganga á milli staða og æfa íþróttir.
Göngutúr í skólann . útivera . hjól . leikir . íþróttaæfing . fótbolti . dans . sund . leika úti með vinum
10 mínútur hér og 20 mínútur þar safnast saman.
Mig langar einnig til að benda ykkur á heilsupróf fyrir foreldra grunnskólabarna sem er nýjung inni á Heilsuveru. Þetta tekur ekki langan tíma og er til gamans fyrir ykkur til að fá ákveðnar vísbendingar um stöðu ykkar barna og fræðslu í leiðinni. Ég hvet ykkur til að prófa að taka það. https://www.heilsuvera.is/heilsuprof-fyrir-foreldra-grunnskolabarna/
Kær kveðja,
Guðfinna
hjúkrunarfræðingur í heilsuvernd skólabarna