Gulur dagur á föstudag í GÍH

Í tilefni af gulum september verður gulur dagur hér í GÍH á föstudag nk., 20. september.

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka sem vinna saman að geðrækt og sjálfsvígsforvörnum. Það er von undirbúningshópsins að gulur september, auki meðvitund fólks um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna, sé til merkis um kærleika, aðgát og umhyggju.

Sjá nánar um verkefnið hér:

https://island.is/forvarnir-sjalfsviga/gulur