Grunnskólinn í Hveragerði auglýsir eftir kennurum

Grunnskólinn í Hveragerði auglýsir eftir kennurum.

Umsjónarkennsla á yngsta- og miðstigi. Tónmenntakennsla hlutastarf, þekking á Suzuki kennsluaðferðum kostur.

Hæfniskröfur: Leyfi til að nota starfsheitið grunnskólakennari. Góð hæfni í mannlegum samskiptum. Faglegur metnaður og skipulagshæfni. Reynsla og áhugi á að vinna með börnum og unglingum.

Grunnskólinn í Hveragerði er vel staðsettur í grónu og glæsilegu bæjarfélagi. Í skólanum eru um 400 nemendur og við hann starfar vel hæft og menntað starfsfólk. Skólinn flaggar Grænfána, vinnur að aukinni heilsueflingu og unnið er eftir Olweusaráætlun. Gott samstarf er við leikskóla bæjarins og Tónlistarskóla Árnessýslu, en útibú tónlistarskólans er í húsnæði skólans. Einkunnarorð skólans eru; viska, virðing og vinátta og einkennist daglegt starf skólans af þeim.

Starfið hentar öllum kynjum. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands (FG).

Umsóknarfrestur er til 3. maí. Frekari upplýsingar veita Sævar Þór Helgason skólastjóri eða Matthea Sigurðardóttir aðstoðarskólastjóri í síma 483-0800. Skal umsóknum ásamt ferilskrá skilað í tölvupósti saevar@hveragerdi.is

Skólastjóri.