Græna framtíðin

Um þessar mundir er að hefjast Græna framtíðin sem er árlegt samstarfsverkefni milli grunnskólans og Garðyrkjuskólans á Reykjum.

Nemendur yngsta stigs fara þangað á vorin þar sem þeir sá sumarblómum, kryddjurtum og/eða öðrum plöntum. Svo er vökvað, priklað og gróðursett og fylgst með vexti plantnanna. Nemendur fá svo plöntur með sér heim í skólalok.

Þetta skemmtilega verkefni hefur vakið mikla lukku meðal nemenda og kennara og er jafnframt ákveðinn vorboði með hækkandi sól :-)