Göngum í skólann

Í dag hefst hið árlega verkefni Göngum í skólann sem haldið er í átjánda sinn hér á landi og Grunnskólinn í Hveragerði tekur að sjálfsögðu þátt. Því lýkur svo formlega miðvikudaginn 2. október. Árlega taka milljónir barna frá 40 löndum víðs vegar um heiminn þátt í Göngum í skólann með einum eða öðrum hætti. Megin markmið verkefnisins eru að hvetja börn til að tileinka sér virkan ferðamáta í og úr skóla og auka færni þeirra til að ferðast á öruggan hátt í umferðinni. Fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar og að draga úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum. Auk þess er reynt að stuðla að vitundarvakningu fyrir virkum ferðamáta og umhverfismálum og það hversu “gönguvænt” umhverfið er.

Göngum í skólann er hluti af verkefninu ,,Virkar og öruggar leiðir í skólann", sem nýtur stuðnings "Go for Green" og annarra samstarfsaðila.
Verkefninu er ætlað að hvetja nemendur, foreldra og starfsmenn skóla til að ganga, hjóla, fara á línuskautum eða á annan virkan hátt til og frá skóla. Íslensk börn og fullorðnir sem taka þátt í verkefninu slást þar með í för með mörgum öðrum þjóðum heims, svo sem Áströlum, Brasilíumönnum, Kýpurbúum, Bretum, Írum, Nýsjálendingum, Svisslendingum og Bandaríkjamönnum.

Októbermánuður er ,,Göngum í skólann" mánuður.
Í októbermánuði ár hvert eru börn hvött sérstaklega til að nýta sér virkan samgöngumáta, svo sem göngu, til að ferðast til og frá skóla. Vegna aðstæðna hérlendis var ákveið af undirbúningshóp verkefnisins að hvetja skóla til að byrja verkefnið í september og ljúka því á alþjóðlega göngum í skólann deginum í byrjun október. Markmið verkefnisins eru meðal annars að:

- Hvetja til aukinnar hreyfingar með því að auka færni barna til að ganga á öruggan hátt í skólann og fræða þau um ávinning reglulegrar hreyfingar.

- Stuðla að heilbrigðum lífsstíll fyrir alla fjölskylduna, en hreyfing vinnur gegn hjartasjúkdómum, offitu og sykursýki II og stuðlar að streitulosun, betri sjálfsmynd, o.fl.

- Minnka umferð við skóla og draga þar með úr umferðarþunga, mengun og hraðakstri nálægt skólum ásamt betra og hreinna lofti og öruggari og friðsælli götum og hverfi.
 
- Stuðla að vitundarvakningu um ferðamáta og umhverfismál. Beina sjónum að því hversu ,,gönguvænt“ umhverfið er og hvar úrbóta er þörf. Auka samfélagsvitund.
 
- Auka vitund um reglur þær er lúta að öryggi á göngu og hjóli.
 
Sjá nánar hér: