Hinn árlegi góðgerðadagur Grunnskólans í Hveragerði verður næstkomandi föstudag, en við höfum haldið góðgerðaþemað árlega frá árinu 2015. Tilgangur þess er að efla samkennd nemenda og láta gott af okkur leiða til þeirra barna sem mest þurfa á því að halda. Nemendur vinna hörðum höndum næstu þrjá daga við að skapa og framleiða ýmsar vörur, handverk og bakkelsi sem selt er á markaðstorgi á föstudagsmorgun.
Í ár styrkjum við Umhyggju - félag langveikra barna og hvetjum alla Hvergerðinga og nærsveitunga til að koma á markaðstorgið á föstudag og láta gott af sér leiða.


