Geðlestin í Hveragerði

Mánudaginn 19. september var fræðsla fyrir nemendur í 9. og 10. bekk sem kallast Geðlestin. Geðlestin er geðfræðsla fyrir nemendur í efri bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla sem byggir á þeirri staðreynd að við búum öll við geð rétt eins og við erum með hjarta. Á lífsleiðinni er mjög líklegt að við lendum í mótvind og þurfum jafnvel að leita okkur aðstoðar. Öflug geðrækt frá unga aldri út lífið er besta ráðið til að takast á við þær áskoranir sem lífið færir okkur. Geðlestin er samstarfsverkefni Geðhjálpar og Hjálparsíma Rauða krossins 1717. Verkefnið er styrkt af félagsmála- og heilbrigðisráðuneytunum.

Mjög vel heppnað verkefni þarna á ferðinni og ekki skemmdi fyrir að MC Gauti var með í för og tók lagið fyrir krakkana.