Fyrirlestur um lesblindu og úrræði

Góðan dag.

Þriðjudaginn 20. október kl 17:00 verður fræðslufyrirlestur um lesblindu í Grunnskólanum.

Snævar Ívarsson framkvæmdastjóri Félags lesblindra kemur og fræðir foreldra og aðra áhugasama um lesblindu og ýmis úrræði sem hægt er að nýta fyrir lesblinda.

Sama dag mun hann hitta alla nemendur á elsta stigi (hverja bekkjardeild fyrir sig) og fræða þau um lesblindu hvort sem þau eru lesblind eða ekki.

Vona að sem flestir geti nýtt sér þetta tækifæri til að fræðast og í framhaldi stutt betur við nám barna sinna.

Bestu kveðjur
Erna Ingvarsdóttir
Lesblindugreinandi