Nemendur láta rödd sína heyrast – vel heppnað nemendaþing á degi mannréttinda barna
Í dag, 20. nóvember, er dagur mannréttinda barna. Dagurinn er helgaður réttindum barna um allan heim og minnir okkur á mikilvægi þess að börn fái að láta rödd sína heyrast, hafa áhrif á eigið umhverfi og taka virkan þátt í ákvörðunum sem þau varða.
Við í Grunnskólanum í Hveragerði ákváðum að halda upp á daginn með nemendaþingi þar sem lýðræði, þátttaka og ábyrgð voru í öndvegi.
Fulltrúar úr öllum bekkjum skólans komu saman til þingsins. Félagar úr stjórn nemendafélagsins stýrðu þinginu, leiddu umræður á hverju borði og fóru yfir skólareglurnar með þingfulltrúum. Það er sannarlega ánægjulegt að sjá nemendur axla slíka ábyrgð og taka þátt í málefnalegri umræðu um það samfélag sem við myndum saman.
Upphaflega stóð til að þingið fjallaði eingöngu um reglur um snjalltæki í skólanum, í ljósi nýrra reglna stjórnvalda um notkun þeirra í grunnskólum. Þegar sú vinna var komin af stað þótti okkur hins vegar tilvalið að nýta tækifærið og fara yfir skólareglurnar í heild sinni, enda eru skólareglur ekki aðeins fyrirmæli sem nemendum ber að fylgja. Þær eru líka sameiginlegur sáttmáli um samskipti, virðingu, ábyrgð og það hvernig við viljum hafa skólann okkar.
Það er mikilvægt að við hlustum ekki aðeins á börn þegar okkur hentar, heldur gefum þeim raunveruleg tækifæri til að hafa áhrif. Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna, sem hefur lagagildi hér á landi, kveður á um rétt barna til að tjá skoðanir sínar í öllum málum sem þau varða og að tekið skuli réttmætt tillit til skoðana þeirra í samræmi við aldur og þroska.
Nemendaþingið í dag var því meira en yfirferð á skólareglum. Það var æfing í lýðræði, samráði, gagnrýninni hugsun og sameiginlegri ábyrgð.
Við þökkum fulltrúum allra bekkja fyrir þátttökuna og ekki síst stjórn nemendafélagsins fyrir að leiða þingið. Það er dýrmætt fyrir skólasamfélagið að sjá nemendur taka frumkvæði, ræða málin og leggja sitt af mörkum.
Lýðræði lærist nefnilega ekki eingöngu af bókum. Það lærist með því að iðka það. Og í dag gerðum við einmitt það.