Frá bæjarstjóra 14.1.2022

Kæru foreldrar og forráðamenn,

Í dag eru 138 Hvergerðingar skráðir í sóttkví og 79 í einangrun. Þessi mikli fjöldi smita hefur áhrif á fjölmargar fjölskyldur og flestar stofnanir og fyrirtæki bæjarins. Forstöðumenn skólastofnana, formaður fræðslunefndar og bæjarstjóri funda reglulega og meta á hverjum degi þá stöðu sem þá er uppi.

Í dag eru hátt í 40% starfsmenn grunnskólans fjarverandi og á annað hundrað nemendur. Það er mikið og flókið starf að reyna að halda einhvers konar skólastarfi gangandi við slíkar aðstæður og á tíðum ómögulegt.

Frístundaskólinn er lokaður þar sem nær allir starfsmenn þar eru í sóttkví.

Leikskólinn Óskaland er lokaður vegna smita sem þar hafa komið upp og þeim fjölda sem þar er.

Ákveðið hefur verið að biðla til foreldra barna á leikskólum bæjarins sem tök hafa á að þeir hafi börn sín heima næstu daga eða á meðan ástandið varir. Foreldrar munu fá leikskólagjöld sem og gjöld vegna mötuneyta felld niður láti þeir leikskólann vita um fjarveru barna sinna með fyrirvara. Hægt er að láta vita í tölvupósti: annaerla@hveragerdi.is eða undraland@hveragerdi.is

Til þess að reyna að hemja útbreiðslu smita í samfélaginu hefur verið ákveðið að loka grunnskólanum, Leikskólanum Óskalandi og Bungubrekku næsta mánudag. Vona ég að allir sýni þeirri ákvörðun skilning. Á þriðjudaginn er starfsdagur og á miðvikudag foreldraviðtöl í grunnskólanum. Með þessari ákvörðun búum við vonandi til andrými til að staðan verði metin og einnig mögulega að smitum muni fækka í kjölfarið.

Við vitum af fenginni reynslu að staðan í samfélaginu getur verið fljót að breytast og munum við gera okkar besta til að halda ykkur upplýstum ef grípa þarf til frekari ráðstafana.

Hveragerði 14. janúar 2022

Aldís Hafsteinsdóttir
Bæjarstjóri