Verðlaunaafhending í ensku smásagnakeppninni 2025 sem félag enskukennara á
Íslandi (FEKÍ) stendur fyrir fór fram 9. febrúar s.l. við hátíðlega athöfn í Veröld -
húsi Vigdísar í Reykjavík.
Það var sendiherra Bretlands á Íslandi Dr. Bryony Mathew sem afhenti nemendum
verðlaunin.
Öllum grunn- og framhaldsskólum landsins stendur til boða að taka þátt í þessari
keppni þar sem nemendur skrifa smásögur á ensku út frá ákveðnu orði/þemu,
sem í ár var orðið EPIPHANY.
Verðlaunin afhenti sendiherra Bretlands á Íslandi Dr. Bryony Mathew.
Nemendur Grunnskólans í Hveragerði hlutu alls fimm verðlaun í þremur
aldursflokkum.
Í flokknum 5. bekkur og yngri unnu eftirtaldir nemendur til verðlauna:
1. verðlaun hlaut Ísabella Rán Andradóttir fyrir söguna Basketball Hero.
2. verðlaun hlaut Hugrún Gunnarsdóttir fyrir söguna Emma and Her Story.
3. verðlaun hlaut Hugi Þór Haraldsson fyrir söguna Neisti and I.
Í flokknum 6. – 7. bekkur hlaut Baltasar Björn Sindrason 1. verðlaun fyrir söguna
The Last Upgrade.
Í flokknum 8. – 10. bekkur hlaut Hera Fönn Lárusdóttir 3. verðlaun fyrir söguna A
Life In Ink.
Bestu kveðjur frá enskudeildinni,
Genimar Adriana Aranguren
Ólafur Jósefsson