Enska smásagnakeppnin

Þátttaka í ensku smásagnakeppninni er fyrir löngu orðinn fastur liður í skólastarfi GÍH. Þetta er landskeppni
sem haldin er í tilefni af evrópska tungumáladeginum þann 26. september og allir grunnskólar á Íslandi mega
taka þátt í. Nemendur í 5. - 10. bekk í GÍH taka þátt á hverju ári og verða smásögurnar að vera skrifaðar á ensku
og tengjast ákveðnu þema sem að þessu sinna var orðið FAKE.

Í dag var upplýst hvaða smásögur voru valdir á sýningu sem hefst á bæjarbókasafninu í Sunnumörk í
desember og hvaða smásögur þóttu skara framúr í hverjum flokki fyrir sig.
Sigmar Karlsson deildarstjóri elsta stigs og Kolbrún Vilhjálmsdóttir deildarstjóri miðstigs stýrðu athöfninni og
afhentu vinningshöfunum glæsileg bókaverðlaun og viðurkenningarskjal fyrir sínar smásögur. Þær smásögur
sendir skólinn svo í landskeppnina.

Í flokknum 5. bekkur og yngri fengu eftirtaldir nemendur bækur úr bókaflokknum “Diary of a Wimpy Kid”:
The Fake Dog Magdalena Sigurjónsdóttir 5. AÞJ
The Fake Life Matthildur Sara Ágústsdóttir 5. AÞJ
Alien in a human’s world Emilía Guðbjörg Hofland Tryggvadóttir 5. AJK

Í flokknum 6. – 7. bekkur fengu eftirtaldir nemendur bækur eftir rithöfundinn David Walliams:
The Stolen Sweets Baltasar Björn Sindrason 6. LH
Mizuki Cat Snædís Freyja Stefánsdóttir 7. ILH
Brave Heiðdís Lílja Sindradóttir 6. GH

Í flokknum 8. – 10. bekkur fengu eftirtaldir nemendur bækur úr bókaflokknum “Harry Potter”:
Allan Bryndís Klara Árnadóttir 10. MÍ
Fake Reality Júlía Dís Sigurðardóttir 10. MÍ
Fake Realities Hera Fönn Lárusdóttir 8. ERP

Við þökkum öllum nemendum kærlega fyrir þátttökuna og óskum vinningshöfunum innilega til hamingju.
Bestu kveðjur frá enskudeildinni,
Genimar Adriana Aranguren Lopez
Ólafur Jósefsson