Enska smásagnakeppnin

Eins og venjulega taka nemendur GÍH þátt í ensku smásagnakeppninni sem félag enskukennara á Íslandi heldur fyrir grunn- og framhaldsskóla landsins í tilefni af evrópska tungumáladeginum þann 26. september. Smásögurnar voru skrifaður út frá enska orðinu „Power“, sem er þema keppninnar í ár.

Nemendur skrifuðu margar frábærar smásögur og verður úrval þeirra sett upp á sýningu á bókasafninu í Sunnumörk í aðventunni en auk þess verðlaun skólinn sérstaklega þær 3 smásögur sem þóttu skara fram úr. Sigmar Karlsson deildarstjóri elsta stigs og Kolbrún Vilhjálmsdóttir deildarstjóri miðstigs afhentu vinningshöfunum glæsileg bókaverðlaun og viðurkenningarskjal og sendir skólinn þær smásögur áfram í landskeppnina.

Í flokknum 5. bekkur og yngri fengu eftirtaldir nemendur bækur úr bókaflokknum “Bear Grylls Adventures”:
Haukur Kári Röðulsson, Hekla Sól Jóhannsdóttir og Snædís Freyja Stefánsdóttir.

Í flokknum 6. – 7. bekkur fengu eftirtaldir nemendur bækur eftir Roald Dahl:
Hera Fönn Lárusdóttir, Árni Snær Jóhannsson og Dagbjört Fanný Stefánsdóttir.

Í flokknum 8. – 10. bekkur fengu eftirtaldir nemendur bækur úr bókaflokknum “Harry Potter”:
Elísa Sigurrós Guðmundsdóttir, Eva Rut Jóhannsdóttir og Kiefer Rahaad Arabiyat Bárðarson.

Við þökkum nemendum kærlega fyrir þátttökuna og óskum vinningshöfunum innilega til hamingju.

Bestu kveðjur frá enskudeildinni,
Bryndís Valdimarsdóttir
Laufey Heimisdóttir
Ólafur Jósefsson