Enska smásagnakeppnin

Fimmtudaginn 3. mars s.l. voru verðlaun veitt í ensku smásagnakeppninni 2021 sem félag enskukennara á Íslandi (FEKÍ) heldur í tilefni af evrópska tungumáladeginum þann 26. september. Grunnskólinn í Hveragerði (GÍH) hefur tekið þátt í landskeppninni samfellt frá árinu 2012 með afbragðs góðum árangri enda er sögugerðin fastur liður í skólastarfinu. Að þessu sinni vorum við svo lánsöm að eiga fjóra vinningshafa sem fengu viðurkenningar sínar afhentar við hátíðlega athöfn að Bessastöðum, þar sem forsetafrúin Eliza Reid afhenti verðlaunin ásamt stjórn FEKÍ. 

Í flokknum 5. bekkur og yngri hlaut Hróar Ingi Hallsson 1. verðlaun og í flokknum 6.-7. bekkur hlaut Bryndís Klara Árnadóttir 3. verðlaun, Sigurður Grétar Gunnarsson hlaut 2. verðlaun og Dagbjört Fanný Stefánsdóttir hlaut 1. verðlaun. Við óskum þeim innilega til hamingju með árangurinn og þökkum öllum þeim fjölmörgu nemendum sem tóku þátt í keppninni, en okkur hafa aldrei borist jafn margar vandaðar smásögur og nú.

Bestu kveðjur frá ensku deildinni,

Ólafur Jósefsson.