Enska smásagnakeppnin

Á hverju ári í tilefni af evrópska tungumáladeginum þann 26. september stendur félag enskukennara á Íslandi fyrir smásagnakeppni á ensku á meðal grunn- og framhaldsskóla landsins. Líkt og undanfarin ár tekur Grunnskólinn í Hveragerði þátt í henni en smásagan átti að þessu sinni að tengjast þemanu „Dear World“.
Í dag er komið að því að kynna úrslit í innanskólakeppninni og afhenda um leið glæsileg bókaverðlaun fyrir þær 3 sögur sem okkur þykja hafa skarað fram úr í hverjum flokki fyrir sig, en við röðum þeim hins vegar ekki í sæti.
Í flokknum 5. bekkur.
AJK: Hróar Ingi Hallsson, úr 5. BE: Matthías Þór Eyþórsson, og úr 5. LH: Hera Fönn Lárusdóttir.
Í flokknum 6. –7. bekkur. 6. SS: Dagbjört Fanný Stefánsdóttir, og Sigurður Grétar Gunnarsson, og úr 7. ÖAG: Bryndís Klara Árnadóttir.
Í flokknum 8. – 10. Bekkur. 8. MÍ: Úlfur Þórhallsson, úr 9. SÁ: Hallgrímur Daðason, og Kiefer Rahhad Arabiyat Bárðarson.
Við sendum allar þessar sögur í landskeppnina. Þær og úrval annarra smásagna verða á sýningu á bókasafninu í Sunnumörk í desember og er alveg tilvalið að fara þangað í aðventunni til að lesa þær.