Sævar Þór, Guðríður, Erna og Margret. Á þessari mynd er vel yfir 100 ára reynsla af störfum í grunnskóla!
Nú í vor hættu þrír reynslumiklir kennarar kennslu við Grunnskólann í Hveragerði. Við þökkum Guju, Ernu og Möggu Ís. kærlega fyrir samstarfið.
Guðríður varð sjötug 4. maí síðastliðinn. Það er von okkar sem í skólanum störfum að hún verði ínáanleg, til dæmis þegar kemur að Góðgerðardögum og hægt verði að leita til hennar með hin ýmsu mál. Erna mun verða með okkur í lægra starfshlutfalli næsta skólaár, sinna Logosgreiningum og ráðgjöf í læsismálum. Margret flytur yfir heiðina og hefur kennslu næsta haust í Árbæjarskóla.
Þessar góðu konur lögðu mikilvæg lóð á vogarskálarnar í skólastarfinu. Skilja eftir fjöldamargar góðar minningar í hjörtum samferðafólks og nemenda. Með þakklæti og hlýhug kveðjum við og óskum þeim velfarnaðar á nýjum slóðum.
Takk fyrir samveruna, hlýjuna og allt það góða sem þið hafið lagt til skólasamfélagsins.