Aukatímar í stærðfræði á elsta stigi

Líkt og fram kom í bréfi frá skólastjóra þann 30. janúar síðastliðinn var umræða í sumum foreldraviðtölum um stærðfræðina á elsta stigi. Sumir nemendur og jafnvel foreldrar upplifa stærðfræðina sem töluverða áskorun þar sem námsefnið á elsta stigi er töluvert þyngra.

Stærðfræði er mikilvægt og margslungið fag þar sem sífellt er verið að byggja ofan á fyrri þekkingu þannig að við teljum mikilvægt að brugðist sé við þessum athugasemdum með viðeigandi hætti.

Í næstu viku munum við því hefja tilraun með aukatíma í stærðfræði utan hefðbundins skólatíma. Markmið þeirra er að draga úr þeirri pressu sem getur skapast og gefa nemendum tækifæri til að dýpka skilning sinn á náminu. Kennslan verður í höndum Garðars Rúnars Árnasonar en hann er margreyndur stærðfræðikennari og starfaði um árabil við Grunnskólann í Hveragerði.

Fyrirkomulagið verður sem hér segir:

8. bekkur: Mánudagur 9. febrúar kl. 14:10-14:50, stofa 218.
9. bekkur: Þriðjudagur 10. febrúar kl. 14:50-15:30, stofa 218.
10. bekkur: Miðvikudagur 11. febrúar kl. 14:50-15:30, stofa 218.

Eftir næstu viku verður fyrirkomulagið endurskoðað og eftir atvikum aðlagað að þörfum nemenda.

Foreldrar verða upplýstir um allar breytingar og framhald verkefnisins.

Nemendum verður kynnt þetta verkefni í vikunni og við hvetjum foreldra til að ræða þetta heima og styðja nemendur í að nýta sér þetta góða tækifæri.