Aðalfundur foreldrafélags GÍH

Þann 22. október verður haldinn aðalfundur Foreldrafélags Grunnskólans í Hveragerði og kynning á Farsældarsáttmála Heimilis og skóla.
Staðsetning: Grunnskólinn í Hveragerði

Kl. 17:30: Aðalfundur
Kl. 18:00: Kynning og vinnustofa frá Heimili og skóla
 
Aðalfundur:
Formlegur aðalfundur. Yfirferð síðasta árs, ársreikningur, kosið í stjórn. Óskað er eftir framboðum í stjórn.
Farsældarsáttmáli:
Frekari upplýsingar verða sendar út á foreldra þegar nær dregur en hægt er að kynna sér verkefnið hér:
https://www.heimiliogskoli.is/farsaeldarsattmalinn
Boðið verður upp á hressingu.
Við viljum hvetja alla foreldra í Grunnskólanum í Hveragerði til að mæta og taka þátt í að móta framtíð foreldrasamstarfs í Hveragerði!