Aðalfundur foreldrafélags

Við bjóðum alla foreldra og forráðamenn hjartanlega velkomna á aðalfund foreldrafélagsins þann 11. nóvember kl. 17:30 í Grunnskólanum í Hveragerði.

Á fundinum verður áhugavert fræðsluerindi frá Angelíu Fjólu:

"Hvað er eiginlega að vera gott foreldri?"

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Við óskum einnig eftir nýjum foreldrum í stjórn félagsins og tökum fagnandi á móti öllum sem hafa áhuga á að taka þátt.

Það væri okkur mikil ánægja að sjá sem flesta, eiga saman notalega stund og spjalla um málefni sem snerta börnin okkar og skólasamfélagið.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Stjórn foreldrafélagsins