Aðgengi að skólanum þessa viku

Komið þið sæl.

Með tilkomu þriðju bylgju Covid 19 hefur verið hert á viðbragðsáætlun hjá okkur í Grunnskólanum í Hveragerði. 

Við höldum áfram að gæta að sóttvörnum og einn liður í því er að takmarka umgengni utanaðkomandi aðila inn í skólahúsnæðið. Því munu engir teymisfundir fara fram inni í skólahúsnæðinu í þessari viku, 21.9-25.9 2020. Haft verður samband við þá foreldra/forráðamenn sem eiga bókaðan fund í skólanum í vikunni og þeim boðinn fundur á rafrænu formi, eða frestun á fundartíma.

Foreldrar eru vinsamlega beðnir að takmarka komu í skólabyggingarnar við brýna nauðsyn og viðhafa þá persónubundnar sóttvarnir í hvívetna.

Við erum í þessu saman!