Skólahald fellt niður 16. mars til og með 23. mars

Komið þið sæl.

Þetta eru mjög sérstakir tímar sem við lifum og við erum í aðstæðum sem ekkert okkar þekkir. Við getum þó sagt að við erum að takast á við krísuástand á heimsvísu.

Þar sem fjöldi starfsmanna og nemenda hafa verið settir í heimasóttkví hefur skólastjóri að höfðu samráði við bæjarstjóra ákveðið að fella niður hefðbundið skólahald dagana 16. mars til og með 23. mars.

Skólasel verður lokað tímabilið 16. mars til og með 23. mars enda flestir þjónustuþegar í sóttkví þann tíma.

Aðstæður eru með þeim hætti að ekki er hægt að uppfylla þau skilyrði sem kveðið er á um í auglýsingu um takmörkun á skólastarfi.

Starfsemi á skrifstofu skólans verður mjög lítil og símsvörun takmörkuð.

Upplýsingar um fyrirkomulag náms og kennslu þennan tíma verður kynnt í póstum frá kennurum á morgun, mánudag.

Athugið, sóttvarnarlæknir hefur ákveðið að fella niður sóttkví nemenda 5. og 6. bekkja þar sem þeir höfðu engin samskipti við smitaðan starfsmann. Nemendur 1., 2., 4., 7. Og 10. bekkja eru áfram í sóttkví til 23. mars.

Sóttkví er notuð þegar einstaklingur hefur mögulega smitast af sjúkdómi en er ekki ennþá veikur sjálfur. Sóttkví er fyrirbyggjandi aðgerð. Nemendur okkar og starfsfólk sem sett hefur verið í sóttkví voru í samskiptum smitaðan einstakling og farið var eftir tilskipun rakningateymis.

- Ítarlegar upplýsingar um sóttkví má finna á vefslóðinni hér fyrir neðan.

- Nemandi eða starfsmaður sem var í samskiptum og nálægð við smitaðan á tilskildum tíma fer í sóttkví.

- Annað heimilisfólk er ekki í sóttkví.
   - Ef einstaklingur sýnir einkenni þá setjið ykkur í samband við 1700.

Með vinsemd og virðingu,
Sævar Þór Helgason skólastjóri.

https://www.landlaeknir.is/servlet/file/store93/item38990/Lei%C3%B0beiningar%20fyrir%20almenning%20var%C3%B0andi%20s%C3%B3ttkv%C3%AD%20%C3%AD%20heimah%C3%BAsi%2002032020.pdf