Nýtt merki skólans

Nýtt merki skólans
Nýtt merki skólans

Grunnskólinn í Hveragerði hefur tekið upp nýtt merki og sem fyrr er það byggt á einkunnarorðum skólans en þau eru Viska – Virðing – Vinátta.

Visku og þekkingar aflar maður sér með því að takast á við lífið, hvort heldur er í leik eða starfi. Í skólanum vex kunnátta og leikni nemenda. Með visku að vopni erum við betur í stakk búin til þess að takast á við verkefni nútíðar og framtíðar. Virðing endurspeglast í þeirri kurteisi sem við sýnum hvert öðru. Hvernig við tölum við annað fólk, hvernig við tölum um það og hvernig við förum með eigur okkar og annarra. Við virðum skoðanir annarra og tökum tillit til ólíkra þarfa, aðstæðna, langana og væntinga til hvers og eins. Vinátta er mikilvægur þáttur þess að fólki upplifi lífshamingju og líði vel í leik og starfi. Hún er einn af hornsteinum daglegra samskipta og undirstaða vellíðanar og framfara.

Hönnuður merkisins er Hrund Guðmundsdóttir.