Hugleiðsludagur

Þann 9. október var hinn árlegi hugleiðsludagur unga fólksins 2019 en hann er haldinn í tilefni af afmælisdegi John Lennon. 

Þann dag bauð Ellen kennari upp á hugleiðslustund fyrir nemendur og starfsfólk þar sem allir voru leiddir inn í hjartað sitt til að finna frið og kærleik gagnvart lífinu og tilverunni. Stundin var afar vel sótt og fær Ellen bestu þakkir fyrir.