Dagur stærðfræðinnar

Dagur stærðfræðinnar
Dagur stærðfræðinnar

Í dag var dagur stærðfræðinnar en hann er fyrsta föstudag í febrúar ár hvert. Markmið með degi stærðfræðinnar er að vekja nemendur og sem flesta aðra til umhugsunar um stærðfræði og hlutverk hennar í samfélaginu og eins að fá nemendur til að koma auga á möguleika stærðfræðinnar og sjá hana í víðara samhengi. Nemendur leystu ýmis verkefni í tilefni dagsins þar sem stærðfræðin lék lykilhlutverk.