Ævar vísindamaður kom í heimsókn

Ævar Þór Benediktsson, leikari og rithöfundur, kom í heimsókn í lok október með upplestur. Hann var að gefa út nýja bók hjá Forlaginu sem heitir ÞINN EIGIN TÖLVULEIKUR og er sjötta bókin í ,,Þín eigin"-bókaröðinni. Ævar las upp úr bókinni fyrir nemendur skólans sem höfðu gaman að. Lestur er bestur.